28. des. 2013

INSTAGRAM VOL.2

Fíknin heldur áfram að pósta myndum á instagram. Myndir síðustu 7 vikur.




















XX - Instagram : @smkjartans

ÁRAMÓTA-DRESSIÐ

Um jólin voru allir fínir og flottir þar sem maður kúraði í faðmi fjölskyldunnar og vina, borðaði góðann mat og opnaði pakka.Ég fékk margar yndislegar gjafir sem ég var rosalega ánægð með. 

En um áramótin hafa allir tækifæri á því að fara svolítið yfir strikið og leyfa sér að vera glitrandi í sprengjugleðinni á gamlárs.

Pallíettur eru svo sannarlega mesta áberandi þetta árið en ég keypti mér kjól í CORAL VERSLUN sem ég dýrka mjög svo og ætla vera í um áramótin.




Pallíettur eru ekki bara pallíettur. Þær leyfa manni að vera prinsessa á skemmtilegan hátt. það er eitthvað við þær sem fær mann til að vilja eiga eitt stykki pallíettu kjól. 


Polyvore hugmyndir




Gamlárs er á morgun svo þið eruð flest allar komnar með kjól eða lumið á kjól í skápnum en sá þennan á ZARA.COM og féll gjörsamlega fyrir honum. 



Vonandi skemmtið þið ykkur um áramótin ! 




XX -smkjartans

FAUX FUR INSPIRATION

Ég hef verið mjög ódugleg að blogga núna í desmeber en ætla henda inn nokkrum núna á næstu dögum svona í lok árs. 

"TREND" vetrarins voru meðal annars allskyns feldir. Núna þessa dagana væri ég ekkert á móti einum þannig. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir þar sem feldurinn gerir mikið fyrir outfittið.
















XX - smkjartans


5. des. 2013

JÓLAGJAFALISTINN ÁRIÐ 2013

jú, eins og flestir íslendingar er ég sjálf byrjuð að pæla í þessum blessuðu jólum. Mamma er sífellt að spurja hvað mig langar í jólagjöf en ég get aldrei svarað. 

Þar sem þessi elskulegu próf eru að gera hálfa þjóðina þunglynda þá ætla ég að henda þessu inn núna. 



En mín topp "wants" í jólagjöf er þetta hér að neðan.




1. Langþráður draumur að fá Michael Kors úr


2. Þessa gullfallegu 67 skór verð ég að fá.

3. Leitin að hinum köflótta trefli. Mikið fyrir trefla og vantar nýjann vetrartrefil í safnið. Sá þennan í Zara og annann svipaðann í hvítu.

4. Mig hefur alltaf langað í keilujárn en þetta nýja "self curling iron" langar mig svo sannarlega í.





5. nýtt í ræktina, vantar svo sannarlega ný föt í ræktina


6. já ég á ekki Dr.Martens en ég væri ekki á móti þessum svörtu.



7. Keypti mér nýlega úlpu ( Post um hana seinna) en hún er mosa græn á litin svo ég væri ekkert á móti einhverri hlýrri úlpu í vetur jafnvel bara frakka sem er svartur.


Zara

MAYA jacket, Vero Moda


Soft Trench Coat, TOPSHOP



8.Bókalistinn er ekki langur í ár og er eina bókin á þeim lista eina af þremur í nýju bókaseríu Veronicu Roth






9. Mér finnst ekkert sérlega gaman að fá jóladót í jólagjöf en sá þetta í IKEA og varð smá ástfangin af þessu silvurlitaða. Svo Simple og gæti alveg eins notað þetta allt árið. 

10. Minni jólagjafir. Littlar krúttlegar, auka jólagjafir, elska ég. 

 
Nýtt Iphone case, maður  á víst aldrei nóg af því....
Og make-up hvítur augnskuggi og nýr púðurbursti er á mínum lista.


 


Ætla hendast í lærdóminn. Takk fyrir að lesa.
Fullt snemmt að segja gleðileg jól ?

XOXO - smkjartans